.

Í fyrsta sinn á Íslandi !

"Self storage centers" eru vinsælt fyrirbæri í Bandaríkjunum og víðar.  Geymslur ehf eru fyrsta fyrirtækið til að bjóða þessa þjónustu á Íslandi.   Við fylgjum ströngustu stöðlum um hreinlæti, öryggi, aðgang, innréttingar o.s.frv.

Geymslur bjóða hentugan kost fyrir: 
    *      Búslóðir 
    *      Dánarbú
    *      Bókhaldsgögn og skjöl
    *      Vetrarvörur í geymslu á sumrin, svo sem skíði og nagladekk.
    *      Lagera fyrir smærri fyrirtæki 
    *      Efni og áhöld fyrir smærri verktaka
    *      Og allt annað sem þarf að geyma á góðum stað

Geymslur bjóða þjónustu sína á tveimur stöðum:

  1.     á Fiskislóð 11 í Reykjavík (fyrir aftan Europris og við hliðina á Krónunni á Granda) og 
  2.     á Miðhrauni 4 í Garðabæ (á móti IKEA og við hliðina á Marel)

Garðabær: Miðhraun 4
Geymslur opnuðu í Garðabæ í maí 2005.  Húnsæðið er mjög glæsilegt og vel staðsett.  Fylgt er ströngustu öryggiskröfum með tilliti til bruna, innbrota, vatnsleka og annarra þátta.  Meðal annars eru 16 öryggismyndavélar og allar hreyfingar vistaðar á tölvu.  Að neðan má sjá nokkrar myndir af húsnæðinu í Garðabæ.

 

Reykjavík: Fiskislóð 11
Fyrsta skóflustunga að Fiskislóð 11 var tekin 25. janúar 2007 og var húsnæðið tekið í notkun í árslok 2007.  Hér má sjá nokkrar myndir af framvindu verksins.

Geymslur ehf var stofnað 1989 og er kennitalan 500189-1699.

Við erum stolt af því að hafa rekið fyriræki okkar á sömu kennitölu í yfir 20 ár.    Það er markmið félagsins að vera áfram leiðandi á sviði geymsluleigu, og bjóða framúrskarandi vöru á sanngjörnu verði.