.

Hvað er "Self storage" eða einkageymslur ?
Einkageymslur er húsnæði sem þú leigir í sérhæfðu geymsluhúsnæði. Þú sem leigutaki læsir rýminu með hengilás og ræður því hver fær aðgang að rýminu. Húsnæðið er byggt og innréttað til að uppfylla strangar öryggiskröfur m.t.t. bruna, þjófnaðar o.s.frv.

Hvenær kemst ég í geymslurnar ?
Þú hefur ótakmarkaðan aðgang að geymslunni þinni á opnunartímum Geymslna. Sjá opnunartíma á forsíðu. 

Hvað er innifalið í leiguverðinu?
Allur kostnaður af rekstri húsnæðisins er inniflainn. Hiti, rafmagn, brunaviðvörunarkerfi, öryggiskerfi, eftirlitsmyndakerfi og fleira.  Leiga hjá Geymslum ehf er undanþegin VSK.

Er lágmarks- eða hámarksleigutími?
Skemmsti leigutími er einn mánuður.  Hægt er að taka geymslu á leigu hvaða dag mánaðar sem er og gildir samningurinn þá til sama dags síðasta leigumánaðar.  M.ö.o. þá er leigutímabil í heilum mánuðum frá hvaða degi sem er.   Það er enginn hámarksleigutími. 

Hvað er uppsagnarfresturinn langur ?
Uppsagnarfrestur er að lágmarki 1 mánuður.  T.d. ef samningur er gerður 15. janúar og ef leigutaki vill slíta samningi 14. mars, þá þarf uppsögn að berast fyrir 15. febrúar.  Sé hins vegar gerður bindandi leigusamningur t.d í 1 ár (sjá afsláttarkjör neðar á síðunni) þá verður leigusamningur í a.m.k út binditímann.  (Sjá nánar í leiguskilmálum Geymslna )  Uppsögn þarf að vera skrifleg, og má vera með tölvupósti á netfangið
geymslur@geymslur.com

Er veittur afsláttur af staðgreiðslu og langtímaleigu ?
Já, afsláttarkjör eru eftirfarandi:

Binditími 6 mánuðir:  5% afsláttur
Binditími 12 mánuðir: 10% afsláttur
6 mánuðir staðgreiddir 15% afsláttur
12 mánuðir staðgreiddir 25% afssláttur

 

Einnig er veittur afsláttur ef leigðar eru fleiri en ein geymsla.

Eru tryggingar innifaldar?
Nei, tryggingar eru ekki innifaldar í leigu. Hins vegar gerum við hvað við getum til að minnka hættu á tjóni. Við erum með brunavarnakerfi, þjófavarnarkerfi, eftirlitmyndavélar með upptöku, vatnslekaviðvörunarkerfi og fleira.  Við bendum þér á að hafa samband við tryggingarfélagið þitt og athuga hvort þú getir bætt þessari trygginu við t..d. heimilistryggingu án aukakostnaðar. 

Er sama verð í Garðabæ og á Fiskislóð?

Þarf að vera með VISA eða MasterCard?
Nei það er ekki skilyrði.  Þú getur fengið greiðsluseðil sendan í heimabanka mánaðarlega.

Þarf að greiða leigu fyrirfram?
Margir notfæra sér að greiða 6 eða 12 mánuði fyrirfram gegn 15% eða 25% afslætti.  Aðrir vilja geta sagt upp geymslunni með mánaðarfyrirvara.  Þeir greiða tvo mánuði við samning og síðan mánaðarlega eftir það.  Inneign er endurgreidd eftir lok samnings.

Fæ ég lánaðan hengilás ?
Já, við lánum þér hengilás að geymslunni, þér að kostnaðarlausu

Get ég veitt öðrum leyfi til að komast í geymsluna ?
Já, en slíkt leyfi þarf að vera skriflegt, annað hvort tekið fram við gerð leigusamnings, eða tilkynnt með tölvupósti.   Geymslur gæta trúnaðar við leigutaka.

Hvað gerist ef ég gleymi að greiða leiguna ?
Ef leiga er ekki greidd á eindaga, þá er krafan send til innheimtu. Ef um langvarandi vanskil er að ræða, þá áskilja Geymslur ehf sér rétt til að losa geymsluna, farga innihaldi hennar og leigja öðrum geymsluna.   Rýming af þessu tagi er þó ekki framkvæmd nema eftir margvíslegar aðvaranir.   En það er að sjálfsögðu best fyrir alla að halda leigugreiðslum alltaf í fullum skilum.  Ef þú ert í minnsta vafa þá skaltu hafa strax samband við okkur.   Leiguskilmálarnir útskýra þetta atriði og mörg önnur ítarlega.   Við hvetjum þig til að kynna þér þá vel áður en þú skrifar undir leigusamning.